05nóvember
Hæ er hjér í main camp nú og er að fara að flitja niður á adit 2 það er nefninlega búið að fækka sjúkraflutningamönnum niður í 3 vorum 7 í vetur. Verður bara unnið á 1 stað (adit 2) svo að við flitjum úr main á 2 ,búið að vera rólegt og kalt undan farið
kem heim í lok november í frí
22október
Jæja komið og blessuð og sæl!! Long time no see!!! Ég er nýkominn aftur hingað upp á fjall eftir kærkomið frí heima hjá fjölskyldunni. Vikan þar flaug áfram, því ver og miður, en svona er þetta, lítið við því að gera. Það er farið að kólna hér uppfrá svo það er nú betra að fara klæða sig vel til að fá ekki kuldabola og láta hann bíta sig í rassinn
Alltaf nóg að gera hjá okkur hér á heilsugæslunni í að sinna sjúklingum veikum sem slösuðum. SVo er búið að biðja mig ásamt vinnufélaga mínum um að kenna nokkrum tökin á slöngubáta hér uppfrá... Því þar sem hið fræga Hálslón er orðið svo stórt að þá er nú kannski ekki seinna vænna en hjá þessum köllum að læra kannski eitthvað á slöngubáta þ.e.a.s sérstaklega ef einhverjum dytti nú kannski það í hug að fá sér smá sundsprett í "stóra baðkerinu" ,eins og við köllum það hér uppfrá, og það þyrfti nú kannski að bjarga viðkomandi... það kæmi sér þá kannski vel að kunna að starta bátnum og svona og ekki verra að læra að stýra honum....
Jæja ætla að hætta núna .... bið kærlega að heilsa öllum
Kveðja frá Kárahnjúkum
23júní
Ég kem heim á mánudaginn jjjiiiibbbbyyy

þetta er búið að vera rólegt úthald
lítið að lang feðum, en síðast þegar ég átti að fara til neskaupstaðar bylaði sjúkrabíllinn það fór milli kassinn

.En að öðruleiti er altt í góðu lagi hér og allir í góðu skapi
bless bless
kveðja frá kárahnjúkum
07apríl
er bara að prufa, eins og konan mín, með blogg hér líka

.... er ennn veðurtepptur hér uppi á fjalli....vonast þó eftir því að geta komist heim á morgun..... kemur í ljós
kveðja frá Kárahnjúkum